Ekkert sem kemur í veg fyrir fjárfestingu

Það er einfaldlega ekkert sem kemur í veg fyrir að hann geti fjárfest hér á landi og byggt hótel. Hann getur stofnað fyrirtæki og/eða leigt landið. Af einhverjum ástæðum vill hann endilega kaupa risa landsvæði fyrir hótelið sitt. Ég get ekki ályktað annað út frá þessu öllu en að hann hafi haft einhverjar aðrar hugmyndir en að byggja þarna hótel. Hann gagnrýnir íslensk stjórnvöld um fordóma en á sama tíma geta íslendingar ekki keypt land í kína, endurspeglar það þá ekki á sama hátt fordóma kínverskra stjórnvalda til íslendinga?
mbl.is Huang gagnrýnir Vesturlönd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Það má svo sannarlega gagnrýna Vesturlönd. Og það má ekki síður gagnrýna Kínaveldið, sem nú rambar á barmi hruns, vegna fasteignabólu og fleira, sem ekki er óskylt svindlbólunni á Vesturlöndum.

Það er um að gera fyrir blessaðan Kínamanninn að vera sanngjarn í sinni gagnrýni, ef hann á annað borð er að gagnrýna, og vill láta taka sig trúanlegan og vera trausts verður.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 27.11.2011 kl. 11:26

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Á íslandi mega allir innan EES kaupa landsvæði en ekki aðrir.

Þetta mundi sumir kalla mismunun.

Sleggjan og Hvellurinn, 27.11.2011 kl. 17:01

3 Smámynd: Kristján Bjarni Guðmundsson

@Sleggjan og Hvellurinn

Mér finnst bara mjög eðlilegt að möguleiki til að kaupa landsvæði sé gagnkvæmur á milli landa.

Svo má líka alveg athuga af hverju reglurnar eru ekki bara þannig að bara aðili með íslenskan ríkisborgararétt megi kaupa land á Íslandi.

Kristján Bjarni Guðmundsson, 27.11.2011 kl. 18:45

4 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Og þér finnst kannski eðlilegt að útlendingar mega ekki kaupa sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi en við megum kaupa upp útgerðir í evrópu?

Sleggjan og Hvellurinn, 28.11.2011 kl. 12:19

5 Smámynd: Kristján Bjarni Guðmundsson

@Sleggjan og Hvellurinn

Já mér finnst ekki eðlilegt að erlend fyrirtæki geti fengið kvóta hér á Íslandi til eignar. Það að önnur lönd leyfi íslendingum að kaupa útgerðir í evrópu er þeirra vandamál.

Kristján Bjarni Guðmundsson, 28.11.2011 kl. 12:30

6 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Skynja smá útlendingahatur frá þér.

Með því að loka á viðskipti hérna á Íslandi skerðir lífskjör okkar.

Þú ert nú háskólamenntaður tölvunarfræðingur.. ég bjóst meira við af þér. Þú hefðir kannski átt að taka hluta af þessu námi þínu í hagfræði/viðskiptafræði deild einsog er í boði í HÍ.

Sleggjan og Hvellurinn, 28.11.2011 kl. 12:36

7 Smámynd: Kristján Bjarni Guðmundsson

Það er enginn að tala um að loka á viðskipti eða leyfa ekki erlendum fyrirtækjum að stofna fyrirtæki eða kaupa fyrirtæki hér á landi. Það sem skiptir máli að ekki sé hægt að selja náttúruleg gæði fyrir fullt og allt úr landi eða að vera með óeðlilega langan leigutíma (ígildi sölu) eins og í tilfelli Magma Energy (130 ár)

Það er nú venjulega talað um að bestu tækifærin séu í því að nota gæðin til að fullvinna vöru og selja hana svo, frekar en að selja bara afnot af gæðunum.

Þannig væri betra fyrir okkur að fullvinna fiskinn hér heima og selja heldur en að selja bara kvóta og betra væri fyrir okkur að nota orkuna hér innanlands til að vinna vöru eða fyrir eigin notkun frekar en að selja bara rafmagnið sjálft.

Kristján Bjarni Guðmundsson, 28.11.2011 kl. 20:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband